Gleðilegt sumar
Þessi síða liggur greynilega í dvala því allir eru víst á Facebook.
Gleðileg jól
Takk fyrir síðast:-)
Takk fyrir gærkvöldið, gaman að hittast loksins og Eygló takk fyrir okkur:-)
Ég er með hugmynd sem ég gleymdi að segja ykkur frá í gærkveldi.
Hvernig litist ykkur á að halda, jólaklúbb, litlujól eða jólaglögg megið velja nafnið sjálfar, persónuleg líst mér best á aðventuhitting. Hugmyndin er sem sagt sú að hafa smá jólaþema í klúbbnum en með það að markmiði að það er "kreppa". Við gætum borðað saman, t.d kæmu allar með einn rétt sem við myndum setja á hlaðborð og allar getað bragðað á. svona kreppujólahlaðborð.
Önnur hugmynd er að ein sægi um fordrykk (geta verið óáfengir sko) og aðra drykki, ein um forrétt, tvær um aðalrétt, ein um eftirrétt og sú síðasta um allskonar meðlæti eða eitthvað annað sem okkur dytti í hug, eða jafnvel boðið fram húsnæði, jólatónlist og skemmtiatriði fram eftir kvöldi;-)
Mér reyndar datt líka í hug að kannski væri gaman að bjóða köllunum okkar og jafnvel börnum líka í þennan klúbb. Ef vel gengi gæti þetta orðið árlegt, fjölskyldukllúbburinn eða makaklúbburinn þar sem fjölskyldan fær loks að skyggnast inn í heim okkar:-)
Hvað segið þið? Myndu þið vilja hittast í svona jólaklúbbi? og mynduð þið vilja hafa karla með, hvað með börnin?
Eða eigum við kannski að gefa skít í þessa svokölluðu kreppu og skella okkur bara á dýrt jólahlaðborð og segja mönnunum bara ekkert frá því;-)
Kv, Íris
Er ekki kominn tími á hitting?
Mig langar endilega að fara að hitta ykkur.
Eygló er komin dagsetning á næsta saumó?
Hvað er annars að frétta af ykkur?
Kveðja, Íris
Lítil stúlka
Bestu kveðjur til ykkar þriggja frá Ástu skástu
Nú er úti norðan vindur, nú er hvítur Esjutindur.....
Er ekki málið að fara að hafa næsta klúbb, svona áður en Rósa fer að eiga?
Væri líka gaman að hitta ykkur allar þar sem Björg komst ekki í síðasta klúbb hjá Ingunni og Ásta komst ekki á kaffihús þar á undan.
Annars þá fer nú að styttast í komu krílisins:-) Ég er viss um að þetta sé fyrsta stúlkubarn saumaklúbbsins, en þið?
Stúlkur ég er að fara í sumarbústað næsta föstudag, skrýtið að fara í bústað án ykkar! Ég mun samt alveg skemmta mér án ykkar. Ég veit, þetta voru tvær vatnsgusur í andlitið -- hún á aðra vini en okkur-- hún ætlar að skemmta sér án okkar-- Ég lofa samt að hugsa til ykkar sko þegar ég ligg í pottinum og horfi á stjörnurnar.
kveðja,Íris sem er á næturvakt
Sumar og sól
Takk fyrir skemmtilegt kvöld í gærkvöldi og takk fyrir æðislegan mat sem Íris riggaði upp á no time eftir 12 tíma brjálaða vakt. Verst að Sigló-Rósa gat ekki verið með. Það verður þá bara ennþá meira gaman að hitta hana á sjálfan brúðkaupsdaginn! ![]()
Vill ekki einhver skella inn myndum úr gæsuninni? Mínar eru staddar á N-Írlandi, en eru væntanlegar heim um helgina ![]()
Kveðja, Eygló
Takið eftir..
Við ætlum að hittast annað kvöld, nei í kvöld (er á næturvakt og veit ekki hvort er nótt eða dagur).
Allavegana Mánudagskvöldið 19. maí kl 20:00 Á Tabascos í Hafnarstræti 1-3
Þetta er mexicoskur staður sem hefur upp á ýmislegt að bjóða http://tabascos.is/
Hlakka til að sjá ykkkur:)
ps.. munið að mæta svangar og kátar..
Æðisleg ferð

Það var svo gaman í bústaðnum að ég get varla beðið eftir næstu ferð

Nenni reyndar ekki að skrifa meira en vonandi látið þig bara í ykkur heyra eða rétara sagt sjá. hahahahaa
Sumarbústaður
Bara fjórir dagar þar til við liggjum í pottinum og höfum það gott.
Muna að taka með sér:
Handklæði
Sundfatnað
Froskalappir/sundfit
Sundgleraugu (fyrir þá sem vilja stunda kafsund í pottinum)
Sundhettu
Sængurver
Koddaver
Lak
Úlpu, jakka eða hlýja peysu (ef við skyldum skreppa á leikvöllinn, í göngutúr eða kíkja á sætu strákana í næsta bústað)
Skó sem hennta í ferðalögum (ekki pinnahæla)
Flögur og nóg af þeim að minnsta kosti einn poka á mann(það er venjan allavega)
Nammi sem ekki skilgreynist sem flögur
Stjörnukíkir
Dr Gunna lög (sem verða leikinn áður en Björg mætir)
önnur tónlist sem dr Gunni hefur ekki komið nálægt(sem verða leikinn eftir að Björg mætir)
Matinn okkar (sá sem verslar)
Krydd(venjan er að ekkert gott krydd er í svona bústöðum)
Morgunmat
Hádegismat jafnvel
Nóg af drykkjum, áfengum og óáfengum
Pakka í pakkaleik
Banana
Náttföt (Rósa náttkjóllinn flotti kemur með)
Góða skapið
Auka nærföt
Auka sokka
Duglegu húsmæðurnar geta bakað eitthvað með kaffinu handa okkur, hinar þurfa ekki að mæta með neitt;)
Spil til að spila með (fyrir alla nema Ingunni)
Spil til að spá með (fyrir Ingunni)
Kannski PS2 og góðar myndir að horfa á eða jafnvel singstar?????
Myndavélar (við þurfum fleiri pottamyndir á netið)
Handáburð
Fótaáburð
Strumpaópal
Andlitskrem
Hreinsikrem
Andlitsmaska
Gúrku
Eyrnapinna
Bómul
Snyrtiveskið
Sjampó
Sturtusápa
Tannbursti
Andrésblöð eða annað heimspekilegt lestarefni
Tannkrem
Hárbursti
Viskastykki og tuskur???
Klósettpappír????
Sólgleraugu
Plástrar
Verkjatöflur
Nál og tvinni
Bensín á brúsum(ef við skyldum verða bensínlausar)
Sólvörn (ef sólin leikur við okkur)
skyndihjálparbækling
og að lokum stóra tösku undir þetta allt saman.
ps.. er í vinnunni að hanga á netinu, þar sem það er ekkert að gera. Allavegana ég hlakka til að fara með ykkur í sumarbústaðarferð sem á eftir að toppa hinar og það er sko erfitt;)
pps.. Ekki taka of mikið mark á mér, eins og ég segi þá er ég í vinnunni og tíminn líður frekar hægt.